Fara yfir á efnissvæði

Fótspor

Á vefsíðu N1 eru notuð fótspor (e. cookies) í þeim tilgangi að bæta notendaupplifun viðskiptavina. Hér að neðan eru nánari upplýsingar um hvað fótspor eru, hvernig þau eru notuð og hvað þau innihalda.

3
SSL skilríki
2
Hvaða fótspor notar N1?
1
Hvað eru fótspor?
3
SSL skilríki

Veflausn N1 gerir notendum kleift að fylla út form, meðal annars vegna umsókna um N1 kort eða lykil. SSL skilríki dulkóða upplýsingar, sem gera gagnaflutning og samskipti öruggari.

2
Hvaða fótspor notar N1?

Veflausn N1 nýtir fótspor fyrir auðkenningu þegar notandi skráir sig inn á Mitt N1, til að halda notanda innskráðum. Einnig nýtir hún fótspor sem koma frá þjónustuaðila okkar Google og nýtir sér þjónustu þeirra Google Analytics. Google Analytics er vefmælingartól sem gerir N1 kleift að fylgjast með umferð á veflausn sinni og hvaða hluta hennar notendur kjósa að skoða frekar en aðra. Upplýsingarnar eru notaðar til þess að þróa og bæta þjónustu og til að aðlaga veflausnina að þörfum notenda. N1 deilir ekki persónuupplýsingum notenda með þriðja aðila.

1
Hvað eru fótspor?

Fótspor eru litlar textaskrár sem vefsvæði geyma í vafra á tölvunni og/eða því snjalltæki sem notandinn kýs að nota. Textaskráin geymir kjörstillingar notandans og greinir notkun með það að markmiðið að bæta notendaupplifun. Fótspor innihalda texta, númer og/eða upplýsingar eins og dagsetningar til að geta aðlagað upplifun að t.d. stýrikerfi, búnaði eða staðsetningu notenda.