Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2014

16. maí 2014

Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2014

N1 hf. birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2014, miðvikudaginn 28. maí 2014.
Sama dag verður haldinn kynningarfundur fyrir hluthafa á Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Kynningin hefst kl. 16:00.

Eggert Benedikt Guðmundsson forstjóri N1 og Eggert Þór Kristófersson framkvæmdastjóri fjármálasviðs N1 munu kynna afkomu félagsins og svara spurningum.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu N1.