Vital við Fannar Pálsson, vörustjóra bílaþjónustu.

24. október 2019

Aukafelgur fyrir vetrardekkin

Færst hefur í aukana á síðustu árum að hafa vetrardekk á aukafelgum. N1 hefur verið leiðandi í því síðustu ár að bjóða felgur á hagstæðu verði fyrir flest ökutæki.  


Kostir þess að hafa vetrardekkin á aukafelgum eru margvíslegir svo sem tímasparnaður, aukin þægindi og minni kostnaður. 

N1 hefur átt í áratuga samstarfi við Alcar sem er austurrískur felguframleiðandi í fremstu röð í Evrópu. Alcar leggur mikið upp úr gæðum og má nefna að felgur frá þeim eru sérvarðar gegn seltu og henta því einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður eins og reynsla síðustu áratuga hefur sýnt.

 

Úrval felgna er að finna inni á www.n1.is  en þar að auki er hægt er að hafa samband við næsta útsölustað upp á að panta felgur með stuttum fyrirvara frá Alcar www.alcar.de ef þær eru ekki til á lager eða um sérstakar óskir er að ræða. 

„Nýir bílar í dag koma í auknum mæli á stærri felgum heldur en áður þekktist. Í Skandinavíu hefur sú þróun átt sér stað á síðustu áratugum að nánast allir seldir bílar eru með belgmeiri vetrardekkjum á minni felgum þar sem um ódýrari kost er að ræða auk þess sem þægindin yfir veturinn eru mun meiri. Bíllinn verður mýkri í akstri auk þess sem grip og flot eykst til muna ásamt því að minni líkur eru á skemmdum felgum. Íslendingar hafa ekki fylgt alveg eftir í þeim málum en þó hefur orðið vakning á síðustu árum þar sem fólk gerir sér grein fyrir kostum þess að hafa vetrardekk á aukafelgum,“ segir Fannar Pálsson vörustjóri bílaþjónustu hjá N1 í Fellsmúla.   

 

Ef viðskiptavinur geymir dekkin á felgum á dekkjahóteli N1 þá eru þau yfirfarin fyrir vor og haust, loft er mælt, felgur þrifnar og jafnvægisstilltar og er því ekkert eftir nema að skrúfa þau undir þegar hentar. Þannig spara ökumenn tíma við skiptin ásamt kostnaði við umfelganir auk þess sem það fer betur með dekk og felgur.

N1 býður upp á fyrsta flokks hjólbarðaþjónustu þar sem metnaður og reynsla starfsfólks endurspeglast í faglegum og öruggum vinnubrögðum.

 

Hægt er að panta tíma í dekkjaskipti á www.n1.is en með því er hægt að lágmarka biðtíma. Ekki láta veturinn koma á óvart. Frekari upplýsingar á heimasíðu N1 www.n1.is