Við lækkum verð á eldsneytislítranum um 15 kr. í dag

05. júlí 2012

Við lækkum verð á eldsneytislítranum um 15 kr. í dag

Í tilefni N1 mótsins á Akureyri um helgina lækkar N1 verð á lítra af bensíni og díseilolíu um 15 kr. til miðnættis í dag, 5. júlí. Bensínlítrinn kostar því 228,70 kr. á N1 í dag en lítri af díselolíu kostar 228,50 krónur. Verðlækkunin gildir til miðnættis.

N1 mótið, sem hófst á Akureyri í gær, er stærsta árlega knattspyrnumót landsins. Þátttakendur eru á fimmtánda hundrað auk þjálfara og liðsstjóra, að ógleymdum foreldrum og forráðamönnum sem leggja leið sína í höfuðstað Norðurlands til að styðja sína menn.

Nánar um N1 mótið