21. júní 2012
Vegabréfaleikurinn 2012
Vegabréfaleikurinn hefst í dag, fimmtudaginn 21. júní. Leikurinn gengur út á það að safna stimplum í vegabréf N1 en þessi leikur hefur verið mjög vinsæll í gegnum árin. Við hvetjum viðskiptavini eindregið að koma við á þjónustustöðvum N1 á ferð sinni um landið í sumar, ná sér í vegabréf, safna stimplum og fá skemmtilega glaðninga í leiðinni.
Vegabréfið í ár samanstendur af 8 stimplum en glaðningur er veittur í 6 af þessum stimplum. Stimpill fæst í vegabréfið í hvert skipti sem verslað er fyrir 300 kr. eða meira á þjónustustöðvum N1. Þegar búið er að safna öllum stimplunum er vegabréfinu skilað inn og handhafi þess getur unnið glæsilega vinninga. Dregið verður úr fullstimpluðum vegabréfum í ágúst.
Stimplaðu þig inn í sumarið með N1!