Úr olíufélagi í framsýnt orkufélag
Á örfáum árum hefur starfsemi N1 tekið gríðarlegum stakkaskiptum. Fyrirtækið hefur færst hratt úr því að vera olíufélag og er réttara að tala um N1 sem „orkufélag“ í dag. Nú er svo komið að fimmtungur allrar orku sem félagið selur er umhverfisvæn orka og telur Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, að hlutfallið eigi eftir að hækka hratt á komandi árum. Í stað þess að berjast gegn þróuninni og einblína áfram á sölu jarðefnaeldsneytis, sem hefur verið aðalsmerki fyrirtækisins frá upphafi, hefur N1 ýtt undir þróunina og er nú orðið leiðandi í orkuskiptum á sínum markaði.
Segja má að grænu umskipti N1 hafi byrjað af alvöru árið 2019 þegar fyrirtækið festi kaup á Hlöðu og 15% hlut í Íslenskri orkumiðlun. Hinrik sagði á þeim tíma að markmiðið með kaupunum væri ekki síst að N1 yrði leiðandi í orkuskiptum á Íslandi. „Við skynjum þessa þróun sem er að eiga sér stað með auknum fjölda rafbíla og þá kröfu frá markaðnum að einhver taki forystuhlutverkið. Markmið okkar er því að halda áfram að þjónusta viðskiptavini sama hvaða tegund af orku þeir kjósa fyrir bílinn sinn,“ sagði Hinrik.
Óhætt er að segja að nú, aðeins þremur árum síðar, sé þessi sýn strax orðin að veruleika. Með kaupum á öllum hlutum í Íslenskri orkumiðlun, sem síðar varð N1 rafmagn, hefur starfsemi fyrirtækisins umbreyst til grænni vegar. Ekki aðeins voru um 20% af allri orku sem N1 seldi í fyrra umhverfisvæn heldur þjónustar fyrirtækið vel yfir 20 þúsund viðskiptavini í reglulegum raforkuviðskiptum; eins og heimili, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Það er því óhætt að tala um N1 sem eiginlegt orkufélag í dag og segir Hinrik að þau séu aðeins rétt að byrja.
Fólk treysti á N1 á ferðalögum
N1 sé þannig í kjörstöðu til að flýta orkuskiptum á Íslandi. „Við erum með þrjátíu þjónustustöðvar um allt land og erum að vinna í því að koma upp öflugum hraðhleðslustöðvum við lykilstaðsetningar félagsins. Markmið okkar er að fólk sjái það sem raunhæfan valkost að keyra hringinn í kringum landið á rafmagni. Fyrir vikið munu fleiri treysta sér í að færa sig úr jarðefnaeldsneyti,“ segir Hinrik.
Eftirspurnin eftir rafmagni N1 hafi nú þegar aukist gríðarlega. „Við finnum hvað það er að verða mikil þörf á þessum innviðum enda hefur rafbílum fjölgað mikið. Við finnum líka að fólk er farið að treysta meira og meira á N1 á ferðalögum sínum í kringum landið, ekki síður en heimahleðslustöðvarnar okkar.“
Hinrik segir að það sé engum blöðum um það að fletta að innkoma N1 rafmagns hafi haft góð áhrif á markaðinn. „Það er alveg ljóst að N1 rafmagn hreyfði við öðrum raforkufyrirtækjum, ekki aðeins þegar kom að því að bæta þjónustuna heldur einnig að lækka verðið til heimila. Það sýnir sig best á því að N1 rafmagn er með umtalsvert lægra verð en þau fyrirtæki sem voru nú þegar á markaðnum áður en við mættum á svæðið.“
Eina rökrétta leiðin
Maður myndi samt halda að það væri eðlilegra fyrir olíufélag að berjast gegn þessari þróun og halda áfram að leggja alla áherslu á bensín og dísil. Hafið þið ekki beinlínis verið að grafa undan kjarnastarfsemi fyrirtækisins með þessari þróun?
„Þessi breyting hefur gengið alveg ótrúlega vel enda finnum við öll að græna vegferðin er eina rökrétta leiðin áfram. Við gerum ráð fyrir því að sala á umhverfisvænum orkugjöfum verði ein af aðaltekjustoðum fyrirtækisins innan örfárra ára og því höfum við unnið markvisst að því að styrkja þennan hluta starfseminnar,“ segir Hinrik. Hann bætir við að gríðarlegur áhugi sé meðal fyrirtækja, ekki síst í þunga- og fólksflutningum, að ráðast í orkuskipti og hefur N1 veitt fjölmörgum fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoð í þeim efnum á síðustu árum.
„Þetta er einfaldlega samtalið sem allir stærri olíunotendur eru að taka þessa dagana. Spurningin er einfaldlega hvernig – ekki hvort – þeir skipti yfir í umhverfisvænni orkugjafa og um leið lágmarka losun og eldsneytiskostnað til lengri tíma litið. N1 býr að því núna að hafa byrjað þessa vegferð snemma enda höfum við öðlast mikla þekkingu og reynslu á þessu sviði. Það eru því forréttindi að vera í þeirri aðstöðu að geta veitt þjónustu og ráðgjöf um orkuskipti og hvernig við aðstoðum fólk og fyrirtæki að stíga grænu skrefin.“
Græna framtíðin fjölbreytt
Hinrik segir N1 spennt fyrir framtíðinni. „Við vinnum eftir þeirri hugsjón að gera ekki hlutina alltaf á gamla mátann. Við erum að huga að framtíðinni, stefnum á aukna sjálfvirkni og aukinn sveigjanleika fyrir viðskiptavini okkar.“
Raforkuverð muni í auknum mæli ráðast af því hvenær notkunin á sér stað, auk þess sem fólk mun geta nálgast alla þjónustu félagsins í N1-appinu.
„Í dag geturðu séð hvaða rafhleðslustöðvar eru lausar á ferð þinni um landið, hafið hleðslu með appinu ásamt því að panta tíma í dekkja- eða olíuskipti. Fljótlega verður hægt að panta mat á þjónustustöðinni áður en þú rennur í hlað og panta alla aðra þjónustu N1 í gegnum appið, þannig að þetta verður allt við höndina.“
Hinrik segir ólíklegt að öll farartæki verði keyrð á rafmagni í framtíðinni og því þurfi að gera ráð fyrir öðru umhverfisvænu eldsneyti, eins og til dæmis vetni, ekki síst fyrir stærri farartæki. „Við sjáum fyrir okkur að uppbygging rekstursins og þjónustustöðva okkar muni tengjast orkuskiptum – sama hver orkugjafinn verður. Jarðefnaeldsneytið á eftir að verða til staðar í töluverðan tíma og því verður þetta einhver blanda næstu árin. Við hjá N1 ætlum alla vega að halda áfram að hraða þessari þróun í átt að grænni, umhverfisvænni og betri framtíð fyrir okkur öll,“ segir Hinrik.
Umfjöllun sem birtist í sérblaði Fréttablaðsins "Hrein orka" 17. nóvember má sjá hér
Mynd: Fréttablaðið/Valli