Starfsfólk N1 velur að styrkja UNICEF á Íslandi

21. mars 2022

Starfsfólk N1 velur að styrkja UNICEF á Íslandi

N1 hefur styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi um tvær milljónir króna og mun fjárhæðin til dæmis nýtast í að útvega 30 þúsund úkraínskum börnum námsgögn til að tryggja það að þau fái áfram að njóta menntunar. UNICEF vinnur nú hörðum höndum við að útvega hreint vatn, heilbrigðisþjónustu, skólagögn, menntun og félagslega sálfræðiþjónustu, sem og fjárhagsaðstoð í Úkraínu.

„Það hefur verið átakanlegt að fylgjast með þeim hörmungum sem dynja á úkraínsku þjóðinni þessa dagana og þeim áhrifum sem stríðið hefur á börn og fjölskyldur þeirra. Því var það vilji starfsfólks N1 að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi á þann hátt á upphæðin renni óskert til málefna sem varða velferð barna í Úkraínu á krefjandi tímum. Það er samfélagsleg skylda okkar allra að leggja okkar af mörkum til þessa þarfa málefnis og styðja við þau góðgerðarsamtök sem stunda óeigingjarnt starf í eldlínunni á átakasvæðum” segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.

„Neyðin í Úkraínu eykst dag frá degi og því skiptir máli að eiga góða bakhjarla sem veita starfinu dýrmætan stuðning. Við erum N1 og starfsfólki þess þakklát fyrir stuðning þeirra við réttindi barna í mikilli neyð, segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

 

Á mynd: Ingibjörg Magnúsdóttir, Stefán Örn Gíslason og Birna Þórarinsdóttir hjá UNICEF á Íslandi taka hér við styrknum frá Hinriki Erni Bjarnasyni og Þyrí Dröfn Konráðsdóttur hjá N1.

 

Nánari upplýsingar veitir Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, forstöðumaður markaðsmála hjá N1 í síma 660 3345 / thyri@n1.is.