31. janúar 2019
Skíðapassar í Bláfjöll, Skálafell og Hlíðarfjall
Skíðapassar í Bláfjöll, Skálafell og Hlíðarfjall fást á völdum N1 stöðvum
Vertu fljótari í brekkurnar og losnaðu við langar raðir með því að kaupa skíðapassann í Bláfjöll og Skálafell hjá okkur. Hægt er að fá skíðakort fyrir börn, unglinga og fullorðna. Kortin gilda í 1, 2 eða 3 klukkustundir en einnig eru fáanleg heilsdags skíðakort. Skíðapassar fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins fást á fjórum N1 stöðvum:
N1 Ártúnshöfða, N1 Háholti, N1 Lækjargötu Hafnarfirði og N1 Stórahjalla.
Hlíðarfjall
Allt frá eins dags passa til fjögurra daga passa eru fáanlegir í Hlíðarfjall hjá okkur. Þú færð skíðapassa í Hlíðarfjall á N1 Leirunni Akureyri.