Er komið að olíuskiptum á bílnum þínum?
Bílinn okkar er lítið án vélarinnar og því mikilvægt að hugsa vel um hana. Eitt af því reglulega viðhaldi sem bílinn þarf er olíuskipti. Þannig er hægt að passa upp á að vélin skili fullum afköstum og endist lengur.
Við olíuskipti er gott að fara eftir kílómetrastöðunni á mælinum og fara eftir þeim miða sem smurþjónustan setur yfirleitt í gluggann hjá þér og í smurbókina. Flestir nýrri bílar eru einnig með aðvörun í mælaborði sem lætur vita ef komið er að olíuskiptum.
Mikilvægt er að keyra bílinn ekki lengra á milli olíuskipta en umboðin og framleiðendur mæla með. Ef olían er notuð of lengi þá missir hún hluta af eiginleikum sínum. Það veldur því að sót og óhreinindi setjast í hluta vélarinnar og valda óþarfa sliti. Að draga olíuskiptin um of veldur því að vélin missir afl og fer að brenna smurolíu.
Við hjá N1 erum með mjög vandaðar Mobil og Q8 olíur. Við leggjum áherslu á að bjóða réttar olíur á öll ökutæki og höfum lagt okkur fram um að þjálfa starfsfólkið á smurstöðvunum með því að gera þeim fært að fylgjast með nýjungum og þróun í smurolíum á bíla.