N1 styrkir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
N1 og forsvarsmenn tíu annarra stórfyrirtækja á Íslandi hittu Jón Atla Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og undirrituðu samning í dag um veglega styrki til Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Undirritunin fór fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands að viðstaddri Vigdís Finnbogadóttur, Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra og fjölda annara gesta.
Önnur fyrirtækin sem standa að samningunum eru Landsbankinn, Icelandair Group, Radisson Blu Hótel Saga, Arion banki, Alvogen, Bláa lónið, Kvika, Reginn, Íslandsbanki, og Íslandshótel. Styrkirnir eru allir nema einn til þriggja ára og nema árleg framlög frá 500 þúsundum til tveggja milljóna króna. Hæstu framlögin eru frá Landsbankanum (6 milljónir), Icelandair Group (4,5 milljónir) og Radisson Blu Hótel Sögu (3,5 milljónir). Alvogen, Arion banki, Bláa Lónið, Kvika og Reginn leggja stofnuninni til 3 milljónir og Íslandsbanki, Íslandshótel og N1 eina og hálfa. Alls nema styrkirnir því 33,5 milljónum króna á samningstímanum.
Styrkjunum verður varið til daglegrar starfsemi vegna undirbúnings Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar, sem mun starfa undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Starfsemi þessa alþjóðlega þekkingarseturs er ætlað að heiðra störf Vigdísar í þágu tungumála og halda áfram því brautryðjendastarfi sem hún hefur unnið á alþjóðavettvangi sem fyrsti og eini velgjörðarsendiherrra tungumála í heiminum hjá UNESCO.
Við sama tækifæri opnuðu Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Aþena Vigdís Eggertsdóttir, dótturdóttir Vigdísar, nýja heimasíðu Vigdísar á nokkrum tungumálum (www.vigdis.is). Vinnu við síðuna var hrint af stað í tilefni af 100 ára afmæli kosningarréttarkvenna á síðasta ári fyrir styrk frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu.
Á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu rís nú bygging Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, en hún mun hýsa alþjóðlegu tungumálamiðstöðina auk kennslu og rannsókna í erlendum tungumálum. Þar verður einnig aðstaða fyrir ráðstefnur og sýningar um framandi tungumál og menningu sem opnar verða gestum og gangandi. Sérstök áhersla verður lögð á að miðla upplýsingum um tengsl Íslands við umheiminn í sögu og samtíð til erlendra ferðamanna. Í þessu nýja þekkingarsetri felast gríðarleg tækifæri til nýsköpunar, ekki síst í tengslum við vísindastarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu.
Með veglegum framlögum sínum taka fyrirtækin höndum saman við Háskóla Íslands um að hrinda þessu metnaðarfulla verkefni í framkvæmd.