N1 styrkir Stjörnuna

25. september 2012

N1 styrkir Stjörnuna

Þann 23.september síðastliðinn mættust Stjarnan og Selfoss í 21. og næstsíðustu umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta á Samsungvellinum. Að venju skapaðist mikil stemning fyrir heimaleik Stjörnunnar.

N1 er einn af aðalstyrktaraðilum Stjörnunnar og var N1 með tunnuleika í  boði fyrir  börnin á leiknum og voru veitt verðlaun fyrir þá sem hittu fótbolta í tunnuna. Stuðningsmönnum sem og öðrum gestum var boðið að skrá sig fyrir N1 korti, og var einn nýr korthafi dreginn út og var svo heppin að fá 20.000 punkta inn á kortið sitt. Í hálfleik voru síðan boltum kastað upp í stúkuna og þeir sem gripu fengu að koma inn á völlin og reyna að skora í mark það var hvorki meira né minna en landsliðsmarkvörður í marki og þeir heppnu sem skoruðu fengu einnig flottan vinning frá N1.

Vinningshafinn sem hlaut 20 þúsund punkta er:

Ragnhildur Sigurðardóttir
Dalsbyggð 6
210 Garðabær