N1 opnar Ísey Skyr Bar í Hveragerði og Borgarnesi
N1 mun í sumar opna Ísey skyrbar á þjónustustöðvum sínum í Hveragerði og Borgarnesi en það verða sjötti og sjöundi staðurinn sem opnar hjá N1. Nú þegar er staðinn að finna á Ártúnshöfða, Hringbraut, Borgartúni, Hafnarfirði og Fossvogi. Á síðastnefndu stöðunum tveimur er jafnframt afgreitt í gegnum lúgu, þannig að hægt verður að sitja bæði inni sem og að panta í gegnum lúgu. Í Hveragerði og Borgarnesi er sama fyrirkomulag og á öðrum stöðum að hægt er að sitja inn á þjónustustöðvunum og njóta þess mikla úrvals sem Ísey skyrbar býður upp á.
Umfangsmiklar breytingar standa nú fyrir á þjónustustöðvum N1 í Hveragerði og Borgarnesi vegna þessa, eins og þeir sem lagt hafa leið sína þar um undanfarið hafa tekið eftir. Ísey skyrbar hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum og því kærkomið að opna fyrstu staðina á landsbyggðinni í sumar.
N1 hefur markvisst unnið að því að auka fjölbreytni í sölu á hollum og næringarríkum matvælum og drykkjum og Ísey Skyrbar fellur vel inn í þann flokk.
„Við höfum fengið fyrirspurnir um Ísey skyrbar á þjónustustöðvum okkar úti á landi og þær viðtökur sem þeir frábæru og hollu réttir sem þar eru í boði hafa hlotið hvöttu okkur til að flýta framkvæmdum og síðar í sumar verður hægt að njóta varanna frá Ísey skyrbar í Hveragerði og Borgarnesi, sem er mikið fagnaðarefni,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.