N1 opnar Ísey og Djúsí í Borgarnesi
Í dag opnar N1 Ísey Skyr Bar á þjónustustöð sinni í Borgarnesi og er það sjöundi Ísey staðurinn sem opnar hjá N1. Nú þegar er staðinn að finna á Ártúnshöfða, Hringbraut, Borgartúni, Hafnarfirði, Fossvogi og nú síðast í Hveragerði. Ísey í Hveragerði fékk frábærar viðtökur en það er fyrsta staðsetning Ísey Skyr Bar á landsbyggðinni. Fleiri staðsetningar á landsbyggðinni munu fylgja í kjölfarið líkt og Borgarnes. Í Borgarnesi er sama fyrirkomulag og á öðrum stöðum þar sem hægt er að sitja inn á þjónustustöðvunum og njóta þess mikla úrvals sem Ísey Skyr Bar býður upp á.
Á sama tíma opnar samloku- og safastaðurinn Djúsí by Blackbox við hlið Ísey Skyr Bar. Djúsí kemur með ferska strauma inn á markaðinn, byggir á hráefna- og hugmyndafræði Blackbox pizzastaðarins, og býður sérlega ljúffengar samlokur og geggjaða djúsa. „Við opnuðum Djúsí inni á Blackbox í Borgartúni í sumar og nú fyrir stuttu hjá N1 Hveragerði sem jafnframt er fyrsta staðsetning Djúsi á landsbyggðinni. Viðtökurnar í Hveragerði voru frábærar, hlökkum við því mikið til þess að færa einnig Borgnesingum þessa snilld í samstarfi við N1“, segir Karl Viggó Vigfússon, stofnandi og yfirkokkur Blackbox.
Í tilefni opnunarinnar fá viðskiptavinir N1 í Borgarnesi 2f1 af öllu á Ísey og Djúsí, dagana 9. – 12. Desember.
Umfangsmiklar breytingar hafa nú staðið yfir á þjónustustöð N1 í Borgarnesi vegna þessa, eins og þeir sem lagt hafa leið sína þar um undanfarið hafa tekið eftir. N1 hefur markvisst unnið að því að auka fjölbreytni í sölu á hollum og næringarríkum matvælum og drykkjum og Ísey Skyr Bar og Djúsí falla vel inn í þann flokk.
„Við höfum fengið fyrirspurnir um Ísey Skyr Bar á þjónustustöðvum okkar úti á landi og þær viðtökur sem þeir frábæru og hollu réttir sem þar eru í boði hafa hlotið hvöttu okkur til að flýta framkvæmdum og nú verður loks einnig hægt að njóta varanna frá Ísey skyr Bar í Borgarnesi, sem er mikið fagnaðarefni,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.