N1 og ON opna hlöðu í Mosfellsbæ
Orka náttúrunnar hefur í samstarfi við N1 tekið í notkun nýja hlöðu með hraðhleðslu fyrir rafbíla hjá í Mosfellsbæ. Það var rafbílaeigandinn og Mosfellingurinn Valgerður Fjóla Einarsdóttir sem fékk sér fyrstu hleðsluna úr hlöðunni í dag, föstudaginn 14. desember.
„Það er gríðarlegur munur að fá hraðhleðslu hingað í heimahagana og þurfa ekki að leita langt yfir skammt þegar hleðslu er þörf,“ sagði Valgerður Fjóla við þessi tímamót.
Viðstödd voru, auk Valgerðar Fjólu, Guðjón Hugberg Björnsson og Hafrún Þorvaldsdóttir frá ON og Kristinn Guðmundsson verslunarstjóri Háholti og Guðný Rósa Þorvarðardóttir framkvæmdastjóri hjá N1.
Ánægjulegt samstarf og afsláttur fyrir N1 korthafa
Fyrir tæpum tveimur árum gerðu ON og N1 með sér samkomulag um uppsetningu á hlöðum á þjónustustöðvum N1, sem býr yfir einu stærsta neti þjónustustöðva við vegi landsins. N1 korthafar fá 10% afslátt af mínútugjaldinu í hraðhleðslum ON á 10 þjónustustöðvum N1 víðsvegar um landið.
„Það hefur lengi verið á dagskrá að bæta við hleðslu í Mosfellsbæ og við höfum fengið margar fyrirspurnir. Það skiptir okkur hjá N1 miklu máli að svara þörfum allra okkar viðskiptavina, ekki síst þeirra sem kjósa að aka með umhverfisvænum hætti“, sagði Guðný Rósa.
Hlaðan í Mosfellsbæ er með hraðhleðslu eftir japönskum og evrópskum staðli auk hefðbundinnar hleðslu (AC). Í smáforritinu ON Hleðsla er hægt að sjá allar hlöður ON, hvernig tengjum þær eru búnar og hvort þær eru á lausu.