N1 mótið 2012
N1 mót KA á Akureyri hefst formlega klukkan 15 miðvikudaginn 3. júlí og standa leikar fram til laugardags. Þar koma saman drengir úr 5. flokki karla í knattspyrnu og keppa við bestu aðstæður. Við fögnum góðri veðurspá en spáin er mjög góð alla dagana.
Skipulag mótsins er til fyrirmyndar líkt og áður og gott samstarf ríkir svo sannarlega áfram á milli N1 KA manna og N1 og verður vonandi framhald þar á.
Mótið þykir eitt besta og sterkasta mót yngri flokka drengja en þar má sjá stjörnur framtíðarinnar. Færustu leikmenn íslandssögunnar hafa stigið sín fyrstu frægðarspor á mótinu.
Gaman er að segja frá því að mótið verður tekið upp og frumsýnt á Stöð 2 Sport fimmtudagskvöldið 12. júlí.
Nánari upplýsingar og fréttir af mótinu má finna á http://www.ka-sport.is/n1motid/