N1 lækkar verð á eldsneytislítranum um 15 kr. í dag

07. desember 2012

N1 lækkar verð á eldsneytislítranum um 15 kr. í dag

Tilkynning til fjölmiðla
Kópavogi 8. desember 2012

Tryggir viðskiptavinir með N1 kort fá viðbótarafslátt að auki.

Í dag lækkar N1 verð á hverjum lítra af bensíni og díselolíu um 15 kr. Verðlækkunin gildir til miðnættis á öllum þjónustustöðvum og sjálfsafgreiðslustöðvum N1. Reglubundin afsláttarkjör N1 korthafa koma til viðbótar þessari verðlækkun auk þess sem korthafar safna tvöfalt fleiri punktum en venjulega út desember.

Verð á metani lækkar einnig um 15 krónur í dag.

Nánari upplýsingar veitir Katrín Guðjónsdóttir hjá N1 í síma 660 3310

Tvöföld jól from N1 hf on Vimeo.

Auglýsing 15 kr. afsláttur í dag (.pdf 3mb)