Margrét Guðmundsdóttir nýr stjórnarformaður N1

13. júlí 2012

Margrét Guðmundsdóttir nýr stjórnarformaður N1

Fréttatilkynning frá N1, 13. júlí 2012

Margrét Guðmundsdóttir var í gær kjörin formaður stjórnar N1 í kjölfar stjórnarkjörs á hluthafafundi félagsins. Margrét hefur setið í stjórninni í eitt ár.

Margrét er forstjóri Icepharma hf., leiðandi fyrirtækis í sölu, markaðssetningu, sérfræðiráðgjöf og þjónustu á íslenskum heilbrigðismarkaði. Hún var áður forstjóri Austurbakka hf. sem sameinaðist Icepharma árið 2005. Þar áður starfaði Margrét sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Skeljungs á Íslandi. Á árunum 1982 til 1995 starfaði Margrét hjá Esso og Q8 í Danmörku, meðal annars sem framkvæmdastjóri  á sviðum upplýsingatækni, mannauðs-,sölu- og markaðsmála.

Aðrir í stjórn eru Þór Hauksson, varaformaður, Helgi Magnússon, Hreinn Jakobsson og Kristín Guðmundsdóttir. Í varastjórn eru Jóhann Hjartarson og Kristinn Pálmason.

Stærstu hluthafar í N1 eru Framtakssjóður Íslands (45%), Íslandsbanki (25%) og Lífeyrissjóður verslunarmanna (10%). Aðrir hluthafar eru meðal annars Almenni lífeyrissjóðurinn, Stafir lífeyrissjóður, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Stapi lífeyrissjóður, Gildi lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður og Íslandssjóður hf.