Jólastyrkur N1
Starfsfólk N1 kaus að styrkja Píeta samtökin, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Fjölskylduhjálp Íslands um jólastyrki fyrirtækisins í aðdraganda jóla. Píeta samtökin hlutu fjárstyrk sem mun nýtast í áframhaldandi meðferðar- og forvarnarstarf samtakanna og hlaut Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur sömuleiðis styrk til kaupa á gjöfum handa börnum á aldrinum 9-17 ára. Einnig þáði Fjölskylduhjálp Íslands hreinlætisvörur frá N1 þar sem mikil vöntun var á slíkum nauðsynjavörum.
Þetta er fjórða árið í röð sem N1 ákveður að auka upphæð styrkja til góðgerðarmála í stað þess að senda jólagjafir til samstarfsaðila og viðskiptavina.
„Þessi ákvörðun mæltist vel fyrir hjá öllum, bæði viðskiptavinum og starfsfólki og því var leikurinn endurtekinn í ár. Við settum valið í hendur starfsfólks N1 um land allt sem hefur komið með ábendingar um styrkþegana í ár og var niðurstaðan sú að styrkja þessi þrjú verðugu málefni. Við finnum fyrir mikilli ánægju með þá niðurstöðu meðal okkar fólks og var vel tekið á móti framlaginu af styrkþegum,“ segir Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, markaðsstjóri N1.
Píeta samtökin voru stofnuð árið 2016 og sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða auk þess að styðja við aðstandendur. Frá apríl 2020 til desember 2020 varð 140 prósent aukning í þjónustu samtakanna og því ljóst að þörfin fyrir störfum þess er mikil í samfélaginu. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur aðstoðar einstæðar mæður og feður, bæði einstæða og með forsjá barna, öryrkja og eldri borgara. Einnig er neyðin mikil á heimilum sem hafa orðið fyrir atvinnumissi þar sem börn búa við krappari kjör. Fjölskylduhjálp Íslands veitir fjölskyldum og einstaklingum í neyð mataraðstoð ásamt því að bjóða upp á sölu á ódýrum fatnaði. Jólamánuðurinn sker sig alltaf úr þegar þúsundir einstaklinga ár hvert njóta aðstoðar til að halda gleðileg jól.
Mynd: Sigrún Edda Elíasdóttir, Þyrí Dröfn Konráðsdóttir og Jón Viðar Stefánsson hjá N1 afhenda Steini Jónssyni og Loru Elínu Einarsdóttur hjá Píeta samtökunum styrkinn í höfuðstöðvum samtakanna.