05. október 2016
Gúmmívinnslan verður hluti af N1
Nýverið var skrifað undir samning um kaup N1 á rekstri Gúmmívinnslunnar á Akureyri. N1 hefur nú þegar tekið yfir rekstur verkstæðisins sem verður áfram starfrækt á sama stað, að Réttarhvammi 1, á Akureyri.
Kaupin eru liður í því að þjónusta betur Akureyringa auk annarra viðskiptavina N1 um land allt. N1 starfrækir nú bæði hjólbarðaverkstæði og smurstöð á Akureyri ásamt verslun og þjónustustöðvum.
Markmiðið er að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og breitt vöruúrval af dekkjum frá bæði Michelin og Cooper.
Stefnt er að því að verkstæðið verði vottað af Michelin eins og önnur verkstæði N1 og auk þess að hægt verði að bóka dekkjaskipti á vefsíðu N1.