Endurbætt húsnæði þjónustustöðvar að Hvolsvelli

07. júní 2010

Endurbætt húsnæði þjónustustöðvar að Hvolsvelli

Fyrir helgi var endurbætt húsnæði þjónustustöðvar að Hvolsvelli formlega opnað.

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu sem og stækkun um 150 m2. Þjónustustöðin tekur nú 150 manns í sæti í stað 90 sem áður var.

Tvö leiksvæði eru á staðnum annað inni og hitt úti sem er afgirt. Ágætis setustofa er á þjónustustöðinni en þar er tilvalið að setjast niður og horfa t.d. á fréttatímann eða íþróttaviðburð.