25. nóvember 2014
Afkoma N1 á 3. ársfjórðungi
Vörusala á 3. ársfjórðungi var 18.271 m.kr. og jókst framlegðin um 1,1% og jókst EBITDA um 7,8% á 3. ársfjórðungi miðað við sama tímabil árið á undan.
Framlegð af vörusölu skiptist þannig að um 59% er vegna sölu á eldsneyti og 41% vegna sölu annarra vara.
Heildarhagnaður á 3. ársfjórðungi nemur því um 932 m.kr. Eigið fé var 14,8 ma.kr. og eiginfjárhlutfall 52,0% en vaxtaberandi skuldir voru samtals 6,7 ma.kr. í lok 3. ársfjórðungs. Hreinar vaxtaberandi eignir voru samtals 2,3 ma.kr.
Sjá nánari upplýsingar um afkomutilkynningu á 3. ársfjórðungi (.pdf)